Foreldrar í Garðabæ reiðir: Bæjaryfirvöld harma að ekki hafi verið gert betur

Foreldrar í Urriðaholti í Garðabæ eru allt annað en sáttir með bæjaryfirvöld og skólastjórnendur í Urriðaholtsskóla vegna frístundamáls. Í gær greindi Fréttablaðið frá því að foreldrar í skólanum hefðu fengið minna en sólarhringsfyrirvara á því að börnin þeirra, sem eru á yngsta stigi grunnskóla, væru ekki með pláss á frístundaheimili skólans.

Rætt var við Ingibjörgu Heiðdal, móður í hverfinu, en barnið hennar var eitt þeirra sem fékk ekki pláss. Hún er læknir sem starfar á bráðamóttökunni og því mjög erfitt fyrir hana að fara fyrr úr vinnunni til að sækja barnið.

„Ég er læknir á bráðamóttökunni og vinn vaktavinnu. Það er gríðarlega erfitt fyrir mig að fara fyrr úr vinnunni til að sækja barnið mitt,“ er haft eftir Ingibjörgu. „Það er líka neyðarástand á bráðamóttökunni,“

Þá er haft eftir fleiri foreldrum í hverfinu að vandi barnafólk sé fjölþættari en umrætt frístundamál.

Í dag kemur fram í Fréttablaðinu að þriðjungur barnanna í Urriðaholtsskóla hafi ekki fengið pláss á frístundinni, en þau eru 46 talsins. Auk þess kemur fram að hundrað börn séu án frístundavistar í bæjarfélaginu öllu.

Auk þess hafi Garðabær harmað hversu seint foreldrar hafi verið látnir vita af málinu.

„Upplýsingagjöf um hvernig staða er varðandi innritun og biðlista á frístundaheimili í Urriðaholtsskóla hefði mátt vera betri fyrir þá forráðamenn/foreldra sem sóttu um pláss fyrir börnin fyrr í ágúst en fengu svör seint um biðlista og þykir skólastjórnendum það miður og verður bætt úr því,“ segir í svari Garðabæjar