Fordæma hatrið og rasismann sem Lenya Rún hefur orðið fyrir

„Þingflokkur Pírata fordæmir það hatur og þann rasisma sem Lenya Rún hefur orðið fyrir, líkt og þingflokkurinn fordæmir hverskyns hatursorðræðu,“ segir í yfirlýsingu sem Píratar hafa sent frá sér.

Tilefnið er oft á tíðum óvægin og hatursfull umræða í garð varaþingmannsins Lenyu Rúnar Taha Karim. Hafa ummælin meðal annars fallið á samfélagsmiðlum.

„Píratar sem stjórnmálaafl er stolt af því að vera hreyfing fólks með gríðarlega fjölbreyttan bakgrunn sem allt á það sameiginlegt að vilja gera samfélagið og heiminn betri. Þessi fjölbreytileiki endurspeglaðist í framboðslistum hreyfingarinnar í Alþingiskosningum í september síðastliðnum,“ segir meðal annars.

Bent er á að á tímabili hafi allt stefnt í að Lenya næði kjöri sem þingmaður, yngst allra Íslendinga.

„Svo fór því miður ekki, en þingflokkur Pírata mun njóta liðstyrks hennar sem varaþingmanns á kjörtímabilinu. Allt frá upphafi stjórnmálaferils Lenyu hefur hún þurft að mæta óvægnum áróðri og rasisma fyrir það eitt að taka þátt í stjórnmálum. Í lýðræðisríki er mikilvægt að allir þjóðfélagshópar hafi rödd og að Alþingi endurspegli sem best þverskurð af samfélaginu sem það þjónar. Hvers kyns rasismi, hatursorðræða og mismunun gagnvart fólki með erlendan bakgrunn er til þess fallinn að grafa undan lýðræðinu og má ekki viðgangast átölulaust,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá er bent á að Lenya Rún sé réttkjörin varaþingmaður á Alþingi og mikilvæg rödd ungs fólks og fólks með erlendan bakgrunn.

„Allt frá kjöri sínu hefur hún þurft að sitja undir rætnum persónuárásum, rasisma og hatursorðræðu vegna uppruna síns. Sumir fjölmiðlar hafa jafnvel gengið svo langt að gera sér mat úr þeirri hatursfullu orðræðu sem Lenya Rún hefur orðið fyrir án þess að gera nokkra athugasemd við rasismann sem í henni felst.“

Í yfirlýsingunni hvetur þingflokkur Pírata stjórnmálahreyfingar á Íslandi til þess að fordæma alla hatursorðræðu og rasisma í pólitískri umræðu.

„Þá biðlar þingflokkurinn til fjölmiðla að sýna ábyrgð í fréttaflutningi um hatursfull ummæli með hliðsjón af þeim skaða sem gagnrýnislaus dreifing slíkra ummæla getur haft í för með sér. Loks lýsir þingflokkurinn yfir fullum stuðningi við Lenyu Rún og harmar það misrétti sem hún hefur þurft að þola á sínum stutta en öfluga stjórnmálaferli.“