Á þriðja tug einstaklinga hafa verið sendir í sóttkví eftir að einstaklingur með COVID-19 sótti æfingu í World Class í Laugum á laugardag. Frá þessu er greint á vef Fréttablaðsins.
Í fréttinni kemur fram að þeir einstaklingar sem voru í sama sóttvarnarhólfi og umræddur einstaklingur hafi fengið símtal frá smitrakningarteyminu í gær og þeir sendir í sóttkví. Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningateymis almannavarna, segir að þetta séu á þriðja tug einstaklinga.
Jóhann segir að smit séu að teygja sig inn á æfingar og í íþróttaiðkun og hlutirnir gerist hratt. „Þó að menn séu að gera allt rétt þá er þetta talsvert mikil áhætta alls staðar,“ segir hann við Fréttablaðið.