Örvar Þór Guðmundsson hjá góðgerðarsamtökunum Samferða deildi tilfinningaþrunginni frásögn á Facebook síðu sinni fyrr í dag en hann lýsir því að hafa fengið ábendingu um unga móður með tvö lítil börn sem átti aðeins 17 þúsund krónur til að lifa af það sem eftir væri mánaðar. Þá var fjögurra ára sonur hennar ný búinn að brjóta gleraugu sín en strákurinn var með mikla sjónskekkju.
„Þar sem ég átti lausa stund í gær þá ákvað ég að fara óhefðbundnar leiðir á þessum skrítnu tímum sem heimurinn býr við. Setti mig í samband við þessa fjölskyldu og við mældum okkur mót í Prooptik, sem er gleraugnaverslun í Kringlunni. Ræddi við yfirmann í þeirra verslun og útskýrði stöðu mála,“ segir Örvar í færslunni og stóðu viðbrögðin ekki á sér þar sem verslunin ákvað að gefa barninu 60 þúsund króna óbrjótanleg gleraugu.
Móðirin tárvot úr gleði
Þar á eftir fór Örvar með fjölskylduna í verslun í Kringlunni þar sem móðirin gat verslað föt á sig og börnin sín. „Þá var þessu ekki lokið. Ég hafði samband við framkvæmdarstjóra hjá Cintamani. Eftir að hafa útskýrt fyrir honum stöðu mála þá stóð ekki á þeim heldur. Áttum að koma strax í verslun þeirra inní Garðabæ. Þar tók hann á móti okkur með sumar og vetrarföt á bæði börnin hennar ásamt úlpu á móðir. Pakki uppá 250.000 krónur.“
„Ég kvaddi svo móðir (sem var tárvot úr gleði) og börnin hennar. Ekki með faðmlagi (þar sem við hlýðum Víði og virðum 2 metra regluna) heldur hlýlegu brosi,“ segir Örvar en kom síðan móðurinni óvart á ný. „Lét hana vita áður en hún settist inní bíl sinn að hún ætti ekki lengur 17 þúsund krónur inná debetkorti sínu heldur 100.000 krónur. Hún á því til pening fyrir mat fyrir sig og börnin út þennan apríl mánuð og getur mögulega gert eitthvað skemmtilegt fyrir börnin sín líka.“
„Hann er alveg viss um að þú ert góðvinur guðs“
Örvar, fyrir hönd samtakanna, þakkar Prooptik og Cintamani fyrir góðvildina og deildi í kjölfarið fallegu bréfi sem móðirinn hafði sent:
„Sæll Örvar
Mig langaði að þakka þér innilega fyrir allt sem þú gerðir fyrir litlu fjölskylduna mína í gær. Gleðin hjá krökkunum er ólýsanleg. Allt sem þau fengu voru hlutir sem ég hef þurft að láta sitja á hakanum þrátt fyrir að það vantaði nauðsynlega. Fór líka í gær og verslaði stígvél á þau bæði.
Langaði líka að segja þér frá samtali milli mín og sonar míns í gærkvöldi. Hann sagði mér að hann væri alveg viss um að þú værir vinur guðs. Því hann var sko búinn að biðja guð að fá svona úlpu (svarta með loðkraga). Hann er búinn að biðja um svona úlpu í marga mánuði en ég hef ekki haft efni á henni. Svo spurði hann mig hvort ég gæti ekki beðið þig að skila til pabba að hann elskaði hann og saknaði hans. Því jú hann er alveg viss um að þú ert góðvinur guðs þannig þetta var svo sjálfsagt í hans unga huga.
Ég held að ég geti aldrei komið alminnilega í orð þakklætinu sem ég finn fyrir. Og hversu ótrúlega mikil hjálp þetta var. Takk fyrir okkur og takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna.“
Gætu hjálpað mörg hundruð fjölskyldum á hverju ári
Að lokum hvetur Örvar fólk til þess að deila færslunni. „Ef allir Íslendingar myndu deila þessum status og styrkja okkar samtök um 500 krónur í dag eða á næstu mánuðum þá getum við auðveldlega haldið okkar starfi áfram næstu 10 árin í það minnsta. Getum hjálpað mörghundruð fjölskyldum á hverju ári. Það þarf ekki meira til.“
Hægt er að styrkja samtökin með eftirfarandi leiðum:
Bankaupplýsingar Samferða:
Banki 0327-26-114
Kt. 651116-2870
Einnig er hægt að hringja í 900 númer Samferða:
907-1081 – gefur 1000 krónur
907-1083 – gefur 3000 krónur
907-1085 – gefur 5000 krónur
907-1090 – gefur 10000 krónur