Fór með Jóni Páli til læknis: „Við vissum eftir það bæði að hann myndi deyja fljótt eftir þetta“

Jónína Bene­dikts­dóttir, at­hafna­kona og í­þrótta­fræðingur, er gestur í pod­cast-þætti Sölva Tryggva­sonar. Ó­hætt er að segja að Jónína komi víða við í við­talinu og segi margar sögur, skemmti­legar í bland við erfiðar.

Í við­talinu segir Jónína meðal annars frá tengslum hennar og Jóns Páls Sig­mars­sonar, sterkasta manns heims. Á milli Jóns Páls og Jónínu var sterkur strengur í mörg ár.

„Jón Páll var ein­stakur maður. Hann var svo lítil­látur og skemmti­legur og fór aldrei fram á neitt. Hann var eins ó­sér­hlífinn og einn maður getur verið. Hann vann hjá mér í 3 ár og við ferðuðumst mikið saman og elskuðum hvort annað. En það gekk ekki upp og við það lifir maður. Það var alltaf gaman með Jóni Páli og ég gæti sagt þér skemmti­sögur af Jóni Páli enda­laust og það var Jóhannes heitinn (Jóns­son) líka. Hrika­lega skemmti­legur maður og kannski er það það sem að ég er að leita í þegar kemur að karl­mönnum. Svona hressir gal­gopa­gæjar af því að ég nenni ekki að vera al­var­leg þegar ég er heima hjá mér,“ segir Jónína en svo kom sorgin þegar Jón Páll féll frá langt fyrir aldur fram.

„Ég fór með honum til Ameríku rétt áður en hann deyr og þá fór hann til læknis og fékk í raun dauða­dóminn. Honum var sagt að æða­kerfið í honum væri eins og í ní­ræðum manni og við vissum eftir það bæði að hann myndi deyja fljótt eftir þetta.”

Í við­talinu fara Sölvi og Jónína yfir tíma­bilin í líkams­ræktinni, tengslin við Jón Pál, ís­lenskt við­skipta­líf, bar­áttuna við Bakkus og margt margt fleira. Þáttinn í heild má sjá hér að neðan: