Fór að gráta við gos­stöðvarnar: „Ég hef beðið í ára­raðir eftir því að sjá hraun“

Breska ríkis­út­varpið BBC ræddi við er­lenda ferða­menn við gos­stöðvarnar í gær sem voru himin­lifandi yfir því að sjá virkt eld­fjall með eigin augum.

„Ég hef beðið í ára­raðir eftir því að sjá hraun, það hefur verið lífs­mark­mið og við á­kváðum að fara nær, við vissum að það væri á­hætta,“ segir par sem ræðir við BBC og virðist vera frá Banda­­ríkjunum af hreimnum að dæma.

„Við vorum að labba niður og ég þurfti bara að stoppa. Stoppa, setjast niður og gráta. Þetta var til­­finninga­­þrungin stund.“

Hægt er að horfa við­talið hér að neðan.