Fólskuleg hópslagsmál í miðborginni eftir að skemmtistaðir lokuðu | Myndband

Hópslagsmál brutust út í miðborg Reykjavíkur í morgun og hefur umrætt myndband vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlinum TikTok. Eins og kunnugt er féllu allar samkomutakmarkanir úr gildi á miðnætti á föstudag og gátu vínveitingastaðir því haft opið lengur en áður.

Fréttavefur DV greindi fyrst frá myndbandinu sem tekið var upp við Lækjartorg undir morgun. Þar má sjá nokkurn fjölda ungra manna slást og staðfesti sá sem tók myndbandið upp, í samtali við DV, að atvikið hefði átt sér stað síðla nætur skömmu eftir að skemmtistaðir lokuðu.

Yfir hundrað athugasemdir hafa verið skrifaðar við myndbandið þar sem netverjar láta slagsmálahundana heyra það. Á myndbandinu má til dæmis sjá þegar sparkað er í liggjandi mann nokkrum sinnum. Þá segir sá sem setti myndbandið inn að kannski hafi það ekki verið svo góð hugmynd að djammið sé komið aftur eftir samkomutakmarkanir vegna COVID-19.

Myndbandið má sjá hér að neðan en vakin er athygli á því að það gæti vakið óhug.

@elfgrimetiktothetok

uuu ókei kannski ekki svo góð hugmynd að djammið sé komið aftur?? ##hvaðerigangi

♬ original sound - elfgrime