Flokkur fólksins hefur lagt fram tillögu um að Reykjavíkurborg bjóði eldra fólki, um og yfir sjötugt, sem hefur áhuga og löngun til að starfa, störf á leikskólum borgarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér.
„Enn og aftur er ekki hægt að taka börn inn í leikskóla vegna manneklu. Þetta veldur foreldrum ómældu álagi. Svör eru óljós og loðin. Börn sem áttu að byrja í september geta kannski byrjað í október. Hér er um að ræða yngstu börnin og þau sem fædd eru síðast á árinu mæta algerum afgangi. Foreldrar eru í örvæntingu sinni að leita annarra leiða. Þau reyna að koma börnum sínum að, jafnvel í öðrum hverfum. Það skýtur skökku við að borgarstjórn sem vill draga úr akstri hafi skapað ástand þar sem foreldrar þurfa gjarnan að keyra þvert yfir borgina á háannatímum til að koma börnum sínum til og frá leikskóla,“ segir í tilkynningunni.
„Í þessum tilfellum er búið að kveðja dagmæðurnar. Sumarfríi er lokið og foreldrar byrjaðir að vinna. Ekki allir foreldrar eiga þess kost að vinna heima. Auk þess verður lítið úr vinnu heima þegar verið er að annast tæplega tveggja ára barn á sama tíma. Fulltrúi Flokks fólksins hefur gagnrýnt þetta harðlega og verið spurður af skóla- og frístundasviði hvaða lausnir hann telji vera í boði. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til í þessu sambandi að Reykjavíkurborg bjóði fólki sjötugu og eldra sem hefur áhuga á að vera lengur á vinnumarkaði og t.d. starfa í leikskólum störf eða starfshlutfall í stað þess að skikka það til að setjast í helgan stein.“
Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði tillöguna fram í borgarráði í morgun.