Gert er ráð fyrir miklum vexti í faraldrinum næstu daga, þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins sem ræddi stöðuna við Má Kristjánsson yfirlækni á smitsjúkdómadeild Landspítalans
„Spámódelin eru þannig að við erum að gera ráð fyrir vexti alla næstu daga, það er bara í takt við fjölgunina í göngudeildinni,“ segir Már við Fréttablaðið. Hann segir að strax á morgun sé gert ráð fyrir miklum vexti og auknu álagi á spítalanum.
„Það hefur verið meira að gera í skoðunum á göngudeildinni og álagið er að aukast alltaf dag frá degi, álagið,“ segir hann og bætir við: „Við höfum undirbúið okkur þannig að við höfum reynt að koma okkur sem mest á rafrænt form og það er náttúrulega mjög mikil sjálfvirkni í því en það er náttúrulega fullt af lausum endum sem þarf að hringja út og svoleiðis.“
Már segir ástandið á legudeild smitsjúkdómadeildarinnar nokkuð gott enn sem komið er. En aðspurður segir hann stöðuna á gjörgæslu þyngri.
„Hvað Covid varaðar er hún bara frekar þung, það eru fjórir sem liggja þar inni og þar af þrír í öndunarvél, þannig að það er bara staðan.“
Þær fregnir berast af sóttkvíarhótelunum að veikindi fólks séu að aukast en Már treystir sér ekki til að fullyrða neitt um það.
„Það er svo erfitt að segja, en þeir sem eru óbólusettir eru að veikjast verr en bólusett fólk og það er bara slangur af fólki sem er óbólusett. Það er bara þannig sem þetta er.“
Um mönnun Covid-deilda spítalans segir hann hafa gengið þokkalega að fá aukamannskap og engar kvartanir um annað séu að berast.
„Það hefur farið fram víðtækt starf til undirbúnings, á vettvangi ráðuneytis, spítalans, heilsugæslu og allra aðila í heilbrigðiskerfinu og hefur veirð ákall um að fólk komi í bakvarðasveitir og á hringilista og svo framvegis,“ segir hann.
Fréttablaðið hafði spurnir af því að leitað hafi verið sérstaklega til björgunarsveita með aukamönnun. Már kannast þó ekki beinlínis við að leitað hafi verið til björgunarsveita sérstaklega. „Ég held það hafi nú veirð þannig að það eru aðilar úr björgunarsveitunum sem hafa komið inn í þetta, hvort sem það hefur verið leitað sérstaklega til Landsbjargar með það.“
Þá á grundvelli sinnar menntunar og reynslu?
„Já og bara vegna hjartastærðar þeirra og hjartalags, sem það tekur þátt í þessu,“ segir Már.