Fólk í blaki við gosið vekur athygli: „Mögulega það íslenskasta sem ég hef séð“

Fjölmargir hafa síðastliðna daga lagt leið sína í Geldingadali til þess að berja eldgosið þar augum en tugir þúsundir manna hafa séð gosið frá því að það hófst fyrir rúmri viku síðan.

Oft á tíðum hefur stemningunni á svæðinu verið líkt við útihátíð þar sem fólk hefur safnast saman og gert sér glaðan dag en misjafnt er hvað fólk hefur haft fyrir stafni við komuna.

Rut Einarsdóttir, verkefnisstjóri LUF, deildi til að mynda skemmtilegu myndbandi í gær á Twitter af stöðunni við gosið en þar sáust nokkrir aðilar í blaki með flæðandi hraun í bakgrunni. „Mögulega það íslenskasta sem ég hef séð,“ skrifaði Rut við færsluna.

Myndbandið vakti töluverða athygli en meðal þeirra sem deildu því var skoskur veðurfræðingur að nafni Scott Duncan. Óhætt er að segja að myndbandið hafi þá farið sem eldur í sinu en rúmlega 41 þúsund manns hafa líkað við myndbandið á innan við sólarhring.

Myndbandið sem um ræðir og færslu Duncan má finna hér fyrir neðan.