„Við erum með mörg dæmi um að fólk sem er búið að vera með kvef eða hósta í einn til tvo daga mæta til okkar og vill fá sýklalyf,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Fréttablaðið.
Heilsugæslustöðvar borgarinnar og bráðamóttakan eru undirlagðar vegna allskonar umgangspesta sem eru í gangi úti í samfélaginu. Hafa margir leitað þangað við minnstu einkennum og vilja fá bót sinna meina strax.
„Það er allt mögulegt í gangi, kvefpestir og magapestir, og fólk er mikið að sækja til okkar. Það hefur kannski verið með kvef eða hósta í einn til tvo daga, er óþolinmótt og má ekki vera að því að vera lasið og vill fá þjónustu,“ segir Ragnheiður við Fréttablaðið. Hún segir að í flestum tilfellum sé um að ræða veirusýkingar sem ganga yfir á nokkrum dögum.
Ragnheiður segir mikilvægt að fólk sýni þolinmæði og meti hvort það sé virkilega þörf á læknisþjónustu eða ekki. „Það er allt á hliðinni á öllum stöðvum,“ segir hún.
Nánar á vef Fréttablaðsins.