Fólk frá áhættusvæðum fari beint í farsóttahús

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun kynna minnisblað á fundi ríkisstjórnarinnar í dag þess efnis að fólk frá ákveðnum áhættusvæðum, samkvæmt skilgreiningu Sóttvarnastofnunar Evrópu, verði skyldað til að fara í farsóttahús eftir komuna til landsins.

Þetta kom fram í máli Svandísar í Morgunútvarpinu á Rás 2.

Hún ræddi við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um stöðu mála í gær en eins og fram hefur komið virðist fjórða bylgja faraldursins vera handan við hornið. Svandís sagði að framhaldið myndi væntanlega skýrast á næstu tveimur til þremur dögum. Þórólfur mun funda með forystumönnum ríkisstjórnarflokkanna fyrir ríkisstjórnarfund í dag.

Í minnisblaðinu sem Svandís mun kynna í dag er einnig að finna tillögur um sýnatöku barna sem hingað til hafa verið undanþegin sýnatöku.