Flugvélin sem saknað hefur verið frá því um hádegisbil á fimmtudag er fundin. Vélin fannst með fjarstýrðum kafbát fyrirtækisins Teledyne Gavia í Ölfusvatnsvík, í sunnanverðu Þingvallavatni, á ellefta tímanum í kvöld.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Landhelgisgæslan sendi frá sér rétt eftir klukkan eitt eftir miðnætti.
Í henni kemur fram að rúmlega þúsund viðbragðsaðilar hafi tekið þátt í leitinni, þar á meðal á níunda hundrað björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, þyrlusveit landhelgisgæslunnar, lögregla, séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sérsveit ríkislögreglustjóra, starfsmenn Isavia, einkaaðilar auk fjölmargra annarra.
„Landhelgisgæslan vill þakka öllum þeim sem komið hafa að þessari umfangsmiklu leit fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf við krefjandi aðstæður,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að rannsókn málsins og næstu skref séu í höndum lögreglunnar á Suðurlandi. Viðbragðsaðilar sem unnið hafa unnið að leitinni eru komnir í hvíld og í hádeginu er fyrirhugaður stöðufundur þar sem farið verður yfir næstu skref.