Flugu til Ís­lands og mættu í vinnu daginn eftir – Guð­mundur vill sótt­varnar­hús við flug­völlinn

„Eins og staðan er í dag þá er í sjálfu sér auð­velt að sjá til þess að veiran fari varla út fyrir flug­völlinn ef ein­staklingar koma smitaðir til landsins,“ sagði Guð­mundur Ingi Kristins­son, þing­maður Flokks fólksins, í ræðu á Al­þingi á dögunum.

Guð­mundur lagði til að hægt væri að koma upp sótt­varna­húsi við flug­völlinn. Miðjan fjallaði fyrst um þetta.

„Það er hótel við flug­völlinn. Það er hægt að nýta að­stöðu við flug­völlinn, það er hægt að búa til sótt­varna­hús, það er hægt að vera með ein­angrunar­að­stöðu. Við eigum að nýta það. Við eigum að passa það á allan hátt og sjá til þess, þó að það sé undir eftir­liti, að ekki verði hægt að koma inn í landið án þess að fara í sótt­kví.“

Guð­mundur nefndi þetta í um­ræðum um sótt­varna­lög en eins og greint hefur verið frá hefur Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir skilað nýjum til­lögum til heil­brigðis­ráð­herra um að­gerðir á landa­mærunum. Staðan á Ís­landi hvað varðar kórónu­veiru­til­felli er góð en á­kveðnar brota­lamir hafa þó komið í ljós á landa­mærunum. Ó­víst er þó ná­kvæm­lega hvað felst í til­lögum Þór­ólfs.

Í ræðu sinni nefndi Guð­mundur dæmi um þessar brota­lamir.

„Ég hitti ein­stak­linga sem vita það frá fyrstu hendi að ein­staklingar fóru út um jólin, fóru í jóla­frí, og komu heim til að vinna; þeir mættu á flug­völlinn og ætluðu í hálfs­mánaðar­sótt­kví en voru mættir í vinnu daginn eftir. Í einu til­felli voru menn jafn­vel reknir heim. Það segir okkur að það sem við vorum að gera virkar ekki. Það sem við erum að gera núna, og getum gert, eftir að við verðum búin að sam­þykkja þessi lög, mun vonandi virka. Við á þingi eigum að stuðla að því með öllum ráðum að veiran komi ekki hingað.“

Guð­mundur sagði að fólk ætti í raun ekki að fara til út­landa nema í al­gjörum neyðar­til­fellum.

„Það setti líka að mér óhug þegar ég sá ný­legt dæmi um það að ein­stak­lingur á Nýja-Sjá­landi, sem fór í 14 daga sótt­kví og í tvær skimanir og fékk alltaf nei­kvætt svar, greindist með smit tveimur til þremur dögum eftir að hann slapp úr sótt­kví.“

Guð­mundur lýsti yfir fullum stuðningi við frum­varpið og kvaðst vona að það yrði að lögum sem fyrst. „Ég vona að sú vinna skili sér þannig að við getum verið hér í sumar í veiru­fríu landi og þurfum ekki að vera með allar þessar tak­markanir.“