Flugu þrátt fyrir spár um óveður í Keflavík

Veðurstofa Íslands hafði spáð fyrir um ofsaveður sem gekk yfir landið í gær og varð til þess að ekki var hægt að hleypa farþegum í millilandarflugi inn í flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í gögnum sem Túristi.is greinir frá og hefur undir höndum frá Veðurstofu Íslands.

Rúmlega 900 manns voru fastir í flugvélum Icelandair á Keflavíkurflugvelli í gær. Vindhraðinn fór yfir 30 metra á sekúndu og var ekki hægt að koma landgöngum eða stigum að þotunum, en það er ekki hægt ef vindur nær 26 metrum á sekúndu.

Spár Veðurstofu gerðu ráð fyrir þessum slæmu skilyrðum samkvæmt þeim gögnum sem Túristi hefur fengið frá stofnuninni. Í spá sem birt var klukkan 18 á laugardag er til að mynda reiknað með allt að 27 metrum á sekúndu í vindhviðum frá klukkan sex á sunnudagsmorgun en þá var von á fyrstu þotum Icelandair frá Norður-Ameríku.

Þetta útlit fyrir ofsaveður var ítrekað í spá á miðnætti á laugardag en um það leyti eru flugvélar Icelandair að fara í loftið frá bandarískum og kanadískum flugvöllum.