Flugstéttirnar gefi eftir en fái hlutabréf í staðinn

Bolli Héðinsson, hagfræðingur og formaður Samtaka sparifjáreigenda, kemur með athyglisverða nálgun varðandi málefni Icelandair Group í þætti Jóns G. í gærkvöldi.. Spurður um það hvort almennir sparifjáreigendur eigi að leggja fé í þennan risa í íslenskri ferðaþjónustu, sem nú rær lífróður, segir Bolli að ekki fari á milli mála að laun flugstétta félagsins verði að lækka og vera samkeppnishæft – ella þurfi að hækka fargjöldin og það sé erfitt í þeirri samkeppni sem ríkir í fluginu. Hann stingur hins vegar upp á því að flugstjórar, flugfreyjur og flugþjónar fái hlutabréf í félaginu í staðinn fyrir þau kjör sem þær kunna að gefa eftir til að halda félaginu á lífi. Þá telur hann allsendis ófært að semja þurfi við mörg stéttarfélög inn Icelandair Group. „Það þarf að semja við öll félögin á sama tíma líkt og gert er í álverinu í Straumsvík,“ segir Bolli.