Flugeldapartý endar með líkamsárás í Skipasundi

„Kæru nágrannar, flugelda partíið í Skipasundinu endaði með líkamsárás,“ segir í færslu sem birtist á Facebook-síðu íbúa í Langholtshverfi í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Svo virðist sem flugeldum hafi verið skotið upp í hverfinu fyrr um kvöldið sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum.

Í annarri færslu sem birtist á tíunda tímanum í gærkvöldi sagði íbúi að hann væri að skjóta upp flugeldum í ljósi þess að hann hefði verið að gifta sig. Þeim sem vildu kvarta væri velkomið að skrifa athugasemd undir færsluna.

„Ég væri mjög þakklátur ef þau ykkar sem urðu vitni að þessu gætu gefið sig fram við lögreglu sem vitni,“ segir í innlegginu sem birtist á ellefta tímanum.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað átti sér stað, en ekki er minnst á atvikið í skeyti sem lögregla sendi frá sér í morgun.

Margir íbúar voru óhressir með lætin enda virkur dagur, vinna hjá mörgum í dag og ekki síður skóli hjá ungum börnum. „Þetta er rakin vanvirðing við náungann,“ segir í einni athugasemd við færslu hins nýbakaða eiginmanns.

„Takk fyrir viðvörunina eða hitt og heldur. Hundurinn hjá mér er enn að jafna sig eftir þetta, vorum í göngutúr þegar þú asnaðist til að gera þetta,“ segir í annarri athugasemd.