Töluverðar umræður hafa skapast um Facebook-síðuna „Fávitavarpið í Geldingahrauni“. Þar keppast notendur við að setja inn myndir af fólki sem kemur sér í mynd af beinni útsendingu RÚV af eldgosinu í Geldingadölum.
Sitt sýnist hverjum um Facebook-síðuna. Sumir hafa hneykslast á því að svona síða sé sett á laggirnar og kannski sé óþarfi að kalla þá „fávita“ sem vilja sínar 15 mínútur í sjónvarpi allra landsmanna. Aðrir benda á að sumir eigi ekki heimangengt og vilji gjarnan fá að njóta þessa merkilega viðburðar án þess að fólk á svæðinu sé að trufla útsýnið. Þá hafa aðrir bent á að hugsanlega gæti myndefni tapast ef snöggar breytingar verða á gosinu og hraunflæðinu.
Flosi Þorgeirsson, sagnfræðingur og gítarleikari HAM, tjáði sig í grúppunni í gær og vakti færsla hans talsverða athygli. Þar færði hann rök fyrir því hvers vegna nauðsynlegt er að hafa síðu sem þessa í loftinu.
„Það hefur dálítið borið á því að fólk sé að hneykslast á þessari síðu og að við skulum leyfa okkur að kalla annað fólk "fávita". Ég skal reyna að útlista hví mér finnst nákvæmlega ekkert annað orð henta fyrir þessa fávita. Úti á landi og víðsvegar um heiminn eru landar okkar sem eiga þess ekki kost á að fara að eldgosinu. Einnig má nefna fólk sem notar hjólastóla eða glímir annars við fötlun sem heftir för. Þetta fólk á þarna möguleika á að virða þetta fyrir sér en þarf að horfa á flíruleg andlit fávita sem geta komist á gosstað en kjósa að SNÚA BAKI Í GOSIÐ til að fíflast í myndavélinni og skemma þannig útsýni annarra. Það get ég ekki kallað annað en fávitagang af fyrstu gráðu.“
Eins og að framan greinir tóku margir undir færslu Flosa. Hringbraut sagði í gær frá óánægju konu einnar, Júlíönu, sem birtist einmitt í þessu títtnefnda „Fávitavarpi“. Var hún mjög ósátt við að mynd af sér hefði ratað þangað inn og bætti við að aldrei áður hefði hún verið kallaður fáviti eða athyglissjúk.
„Ég reyni alltaf að hegða mér vel og mér datt satt best að segja ekki í hug að ég væri að gera neitt rangt. Mér finnst þetta mjög lágkúruleg síða. Ef þetta truflar ykkur svona mikið væri skynsamlegra fyrir ykkur að snúa ykkur til eigenda vefmyndavélarinnar og biðja þá um að setja upp skilti með kurteislegum tilmælum til fólks um að standa ekki fyrir framan myndavélina. Kveðja, Júlíana.“