Flóki týndist í Reykjavík í vor en fannst á Selfossi í vikunni

Kettir sem týnst hafa í Reykjavík hafa í að minnsta kosti tveimur tilfellum dúkkað upp á Selfossi á undanförnum mánuðum. Kötturinn Flóki er annar þeirra en hann hefur almennt fasta búsetu í póstnúmeri 108 í Reykjavík en hann fannst á Selfossi á dögunum.

Fréttablaðið fjallar um þetta óvenjulega mál í dag.

„Það er eiginlega ömurlegt hvað fáir kettir eru örmerktir. Þess vegna dönsum við eiginlega stríðsdans þegar það gerist. Eins og í tilviki Flóka, sem var kominn heim til Reykjavíkur stuttu eftir að hann var kominn í okkar hendur,“ segir Guðný Tómasdóttir, bóndi á Ormsstöðum og meðlimur Villikatta á Suðurlandi, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Hún segir það ekkert einsdæmi að borgarkettir finnist á Selfossi. „Ég man eftir einum í fyrra sem var örmerktur og hann kom frá Stokkseyri.“

Guðný segir að það sé allt of mikið að gera hjá Villiköttum og bara á einni viku hefur félagið tekið að sér fimm ketti og komið tveimur til síns heima enda voru þeir með örmerkingu.

„Ég veit að það urðu miklir fagnaðarfundir. Við vitum því miður lítið sem ekkert um hina tvo annað en að þetta eru ljúfir og góðir kettir þannig að þeir eru af góðum heimilum. Þeir voru alveg grindhoraðir þannig að maður heldur að þeir séu að koma langt að,“ segir hún.

Nánar um málið á vef Fréttablaðsins.