Flestir eru almennt ekki áhugasamir um að búa í miðborg Reykjavíkur. Það eru ekki nema þeir sem þar búa sem hafa áhuga á því eða þeir sem búa í nærliggjandi hverfum.
Þetta kemur fram í áhugaverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag við Þórodd Bjarnason prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.
„Hlutfall fólks sem vill búa í miðborg Reykjavíkur er lágt,“ segir Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, sem kynnti niðurstöður rannsóknar um búferlaflutninga nýlega á Þjóðarspeglinum. Rannsóknin er grunnur að nýrri bók, Byggðafesta og búferlaflutningar, sem kemur út fyrir jólin.
Frá aldamótum hefur mesta fólksfjölgunin verið í kringum höfuðborgarsvæðið. Til dæmis á Selfossi, Akranesi og í Reykjanesbæ. Háu fasteignaverði hefur verið kennt um þennan „flótta“ en það er ekki það eina sem spilar inn í.
Viðtalið við Þórodd í heild sinni má lesa hér.