Flestir ætla að kjósa Sjálf­stæðis­flokkinn: VG sækir í sig veðrið

Fylgi Sjálf­stæðis­flokksins mælist nú 24,4% sam­kvæmt nýrri könnun MMR, eða tæp­lega þremur prósentu­stigum lægra en við síðustu könnun sem fram­kvæmd var undir lok nóvember 2020.

Fylgi Sam­fylkingarinnar jókst um tæp tvö prósentu­stig og mældist 15,6% en fylgi Pírata lækkaði um tæp tvö prósentu­stig og mældist nú 12,3%. Fylgi Vinstri grænna jókst um rúm­lega þrjú prósentu­stig og mældist nú 10,9%, fylgi Við­reisnar dalaði um 0,7 prósentu­stig og mældist nú 8,8%. Þá jókst fylgi Fram­sóknar­flokksins um eitt og hálft prósentu­stig og mældist nú 9,1% og fylgi Mið­flokksins jókst um tæp tvö prósentu­stig og mældist nú 8,6%.

Stuðningur við ríkis­stjórnina mældist nú 50,9% og jókst um tæpt prósentu­stig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,0%.

Fylgi Sjálf­stæðis­flokksins mældist nú 24,4% og mældist 27,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sam­fylkingarinnar mældist nú 15,6% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,3% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi Fram­sóknar­flokksins mældist nú 9,1% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi Við­reisnar mældist nú 8,8% og mældist 9,5% í síðustu könnun.
Fylgi Mið­flokksins mældist nú 8,6% og mældist 7,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,9% og mældist 6,2% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíal­ista­flokks Ís­lands mældist nú 4,4% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,0% saman­lagt.

Könnun MMR var fram­kvæmd dagana 30. desember til 11. janúar og svöruðu 2.002 ein­staklingar, 18 ára og eldri, henni.