Tveir af lykilmönnum íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson, greindust með Covid-19 á hraðprófi í morgun.
Beðið er niðurstöðu PCR-prófs en ef smitin eru staðfest er um að græða gríðarlegt áfall fyrir íslenska liðið enda Aron og Bjarki Már í hópi bestu leikmanna heims í sínum stöðum.
Í græ var greint frá því að þrír leikmenn landsliðsins hefðu greinst jákvæðir, þar á meðal markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson.
Í tilkynningu sem HSÍ sendi frá sér rétt í þessu kemur fram að Aron og Bjarki Már séu komnir í einangrun uns niðurstaða PCR-prófs liggur fyrir. Margt bendir því til þess að smitin í íslenska hópnum séu orðin fimm talsins.
Ísland mætir heimsmeisturum Dana í kvöld en liðið fór með fullt hús stiga í milliriðil Evrópumótsins eftir frábæra sigra á Portúgölum, Hollendingum og Ungverjum.