Fleiri mögulegir arftakar Halldórs Benjamíns nefndir til sögunnar

Þeim fjölgar nöfnunum sem hátt fara í umræðunni um hver taki við af Halldóri Benjamín Þorbergssyni sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Hringbraut greindi frá því í gær að talsverð umræða er í gangi um mögulegan eftirmann Halldórs Benjamíns sem senn hverfur til starfa sem forstjóri Regins hf.

Anna Hrefna Ingimundardóttir, Svanhildur Hólm og Heiðrún Lind Marteinsdóttir.

Meðal þeirra sem helst hafa verið nefnd sem hugsanlegir arftakar hjá SA eru Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Svanhildur Hólm, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Þá hefur Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis, einnig verið nefndur sem heppilegur framkvæmdastjóri SA vegna þekkingar á samtökunum, reynslu af kjarasamningum, auk þess sem hann er talinn eiga auðvelt með að vinna sér traust samstarfsmanna og viðsemjenda.

Jens Garðar Helgason.
Mynd/ SFS

Síðan fréttin birtist í gær hefur Hringbraut heyrt fleiri nöfn nefnd í þessu sambandi. Jón Ólafur Halldórsson, fyrrverandi forstjóri Olís og núverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu, er nefndur sem líklegur eftirmaður Halldórs Benjamíns. Hringbraut hefur heimildir fyrir því að sterkir aðilar innan SA horfi til Jóns Ólafs.

Einnig er nefndur til sögunnar Ingólfur Bender, hagfræðingur. Ingólfur er reynslumikill og fær hagfræðingur sem starfað hefur um árabil hjá Samtökum iðnaðarins, auk þess sem hann starfaði hjá Glitni og Íslandsbanka.

Þá er ónefndur Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Hann á að baki langan feril í fjölmiðlum og hefur meðal annars verið ritstjóri bæði Morgunblaðsins og Fréttablaðsins. Sem framkvæmdastjóri FA hefur hann verið ötull baráttumaður fyrir bættu samkeppnisumhverfi hér á landi.

Ólafur Stephensen, Jón Ólafur Halldórsson og Ingólfur Bender.

Allir þrír þykja yfirvegaðir og færir í mannlegum samskiptum sem áhrifamenn innan SA telja margir að séu meðal mikilvægustu eiginleika framkvæmdastjóra samtakanna nú þegar fram undan eru snúnir kjarasamningar við sundraða verkalýðshreyfingu.

Viðsjárvert ástand er á íslenskum vinnumarkaði og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, sagði í samtali við Hringbraut í gær að samtökin myndu taka sér tíma og vanda valið á næsta framkvæmdastjóra. Rétti karlinn eða konan yrði fyrir valinu, ekkert liggi á þar sem Halldór Benjamín sé ekki á förum fyrr en í sumar.