Fleiri horfa á Gísla Martein á landsbyggðinni en í höfuðborginni

Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri vekur athygli á áhugaverðum niðurstöðum úr sjónvarpskönnunum þar sem fram kemur að fleiri horfi á Vikuna með Gísla Marteini á landsbyggðinni en í Reykjavík.

„Það er dálítið áhugavert að sjá ítrekað mjög neikvæða umræðu um RÚV og þá sérstaklega á landsbyggðunum. Þósvo að traust til fréttastofu RÚV sé mjög mikið þá er traustið mælanlega minna hjá íbúum landsbyggðanna en höfuðborgarinnar, þó svo að munurinn sé reyndar ekki mikill miðað við könnun frá því í fyrra,“ segir Hilda Jana.

Hún segir að þrátt fyrir neikvæða umræðu þá horfi íbúar landsbyggða meira á RÚV en íbúar höfuðbogarinnar og hlusta töluvert meira á Rás 2 en íbúar í REykjavík.

„Þegar vinsælir þættir í sjónvarpi eru skoðaðir þá eru nákvæmlega sömu þættir vinsælir í höfuðborginni og á landsbyggðunum, þar sem Landinn er vinsælastur. Þá vekur sérstaka athygli að úbar landsbyggðanna horfa meira á þætti Gísla Marteins en íbúar höfuðborgarinnar. Hvað ætli gerti skýrt þetta sem að minnsta kosti við fyrstu sýn hljómar eins og þversögn?“