Flaskan kostar sitt hjá Birgittu: Sú dýrasta á 750 þúsund krónur – Vodkaflaska á 150 þúsund

World Class-erfinginn og athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir vinnur nú hörðum höndum að því að endurreisa skemmtistaðinn B5 í Bankastræti ásamt góðum hópi fólks.

Á Facebook-síðu staðarins birtust nokkrar áhugaverðar færslur í gærkvöldi þar sem sjá mátti úrval þeirra vína sem viðskiptavinum stendur til boða. Óhætt er að segja að sumar flöskurnar séu ekki fyrir hinn venjulega meðal-Jón, enda kosta margar þeirra nokkur hundruð þúsund krónur – og sú dýrasta 750 þúsund krónur.

Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum verður þar að auki rukkað inn á staðinn eftir klukkan 22 á kvöldin. Þetta er væntanlega gert til að trekkja að hina efnameiri og takmarka aðsóknina sem gæti orðið töluverð. Ekki liggur fyrir hversu mikið staðurinn mun rukka.

Ásthildur Bára Jensdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri staðarins, sem ber heitið Bankastræti Club, og mun hún stýra staðnum við hlið Birgittu Lífar. Ásthildur hefur starfað sem markaðssérfræðingur hjá nokkrum af vinsælustu veitingastöðum landsins, til dæmis Fjallkonunni, Sushi Social og Sæta svíninu.

Ljóst er að staðurinn verður með þeim flottari hér á landi og ekki fyrir hvern sem er að eiga þar viðskipti. Sem fyrr segir kostar dýrasta vínflaskan, þriggja lítra Dom Perignon Jeroboam hvorki meira né minna en 750 þúsund krónur. Flaska af Dom Perignon Rose Magnum kostar 400 þúsund krónur og flaska af Moet & Chandon Salmanazar kostar 500 þúsund krónur.

Þá er hægt að fá Bottega Gold-freyðivín á 10 þúsund krónur en ekki kemur fram um hversu mikið magn er að ræða. Samkvæmt vef Vínbúðarinnar kostar 200 ml. flaska af því 799 krónur. Þá verður einnig sterkara áfengi í boði, 700 ml. flaska af Smirnoff-vodka kostar 50 þúsund krónur og eins og hálfs lítra flaska af Gray Goose kostar 150 þúsund krónur.