Fjóshaugurinn sjónarhóll

Pistlahöfundurinn Ólafur Arnarson beinir spjótum sínum að Framsóknarflokknum í Náttfarapistli sínum sem birtist hér á Hringbraut í gær.

Vísar hann í upprifjun í sunnudagsblaði Morgunblaðsins fyrr í þessum mánuði, þar sem blaðið rifjar upp átök milli þess og Tímans, sáluga, sem var málgagn Framsóknarflokksins, í aðdraganda borgarstjórnarkosninga fyrir 60 árum.

Í hita leiksins mun Esjunni hafa verið líkt við fjóshaug í skrifum Tímans.

Ólafur leggur út frá þessu og segir hann framsóknarmenn í eðli sínu vera sveitamenn sem stundum hafi fjóshauginn sem sinn sjónarhól.

Rekur hann framboðsraunir flokksins í borginni og mikla leit þeirra að þekktu fólki á listann sem að lokum hafi leitt til þess að fenginn hafi verið fyrrverandi fréttamaður sem jafnframt er fyrrverandi formaður ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi til að leiða listann.

Hann veltir fyrir sér hvort Framsókn og Sjálfstæðisflokkur séu orðnir svo líkir, báðir framsóknarflokkar, að frambjóðandinn hafi ekki þurft að fara langt þó að hann skipti um flokk.

Framsókn á engan fulltrúa í borgarstjórn nú og Ólafur telur enga þörf á að breyta því. Framsóknarflokkurinn vinni gegn hagsmunum borgarinnar og borgarbúa og berjist gegn því að íbúar höfuðborgarsvæðisins njóti kosningaréttar til jafns við íbúa landsbyggðarinnar.

Bætir hann við að vald sitt í þjóðmálum sæki Framsókn að hluta til þess óréttláta kosningakerfis sem færir landsbyggðinni tvöfaldan atkvæðisrétt á við Reykvíkinga. Engin þörf sé á slíkum flokki að halda við stjórn borgarinnar.

Náttfarapistil Ólafs má lesa hér.