Fjórtán ára piltur frá Portúgal, Vitor Godinho, lést í gærmorgun eftir að hafa greinst með Covid-19. Talið er að hann sé yngsta fórnarlamb Covid-19 í Evrópu.
Fjölmiðlar greindu í liðinni viku frá 16 ára franskri stúlku, Julie Alliot, sem lést á sjúkrahúsi í París á miðvikudag í síðustu viku. Hún var ekki með nein undirliggjandi veikindi og lést viku eftir að hafa fundið fyrir fyrstu einkennum.
Vitor var einnig heilsuhraustur – fyrir utan það að glíma við psoriasis – og æfði hann fótbolta með liði í heimabæ sínum skammt frá borginni Porto. Portúgalska knattspyrnusambandið minntist Vitor á heimasíðu sinni í gær og sendi vinum hans og aðstandendum samúðarkveðju.
Tæplega 6.000 tilfelli Covid-19 hafa greinst í Portúgal og þá eru staðfest dauðsföll þar í landi af völdum veirunnar orðin 119, samkvæmt tölum Johns Hopkins-háskólans.