Fjórtán ára drengir handteknir grunaðir um að ráðast ítrekað á fólk af handahófi

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun er greint frá afskaplega sorglegu máli. Þrír fjórtán ára drengir hafa verið handteknir af lögreglunni í miðborg Reykjvaíkur í nótt. Drengirnir eru grunaðir um að hafa verið að ráðast á fólk af handahófi á að minnsta kosti þremur stöðum í miðbænum.

Þeir eru sagðir hafa sparkað í höfuð fórnalamba sinna eftir að hafa slegið þau í jörðina. Þá hafi þeir verið vopnaðir eggvopnum, sem þeir ógnuðu fólki með.

Fram kemur að málið hafi verið afgreitt með aðkomu barnaverndar og drengirnir verið vistaðir á viðeigandi stofnun.