Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra og framkvæmdi húsleit á sex stöðum í umdæminu og utan þess í morgun, en aðgerðirnar tengjast rannsókn hennar á manndrápi í austurborginni í síðasta mánuði.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér rétt í þessu. Frekari upplýsingar um málið koma ekki fram, en að sögn lögreglu má búast má við annarri tilkynningu frá lögreglu vegna fyrrnefndra aðgerða þegar frekari upplýsingar liggja fyrir, hugsanlega síðar í dag. Ekki liggur fyrir hvort farið verði fram á gæsluvarðhald.
Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi, tveir karlmenn og ein kona, vegna málsins. Einn þeirra situr nú í fjögurra vikna gæsluvarðhaldi en um er að ræða albanskan karlmann sem grunaður er um að hafa skotið Armando Beqirai til bana fyrir utan heimili hans í Rauðagerði um miðjan febrúarmánuð. Sex eru í farbanni vegna rannsóknarinnar og tólf hafa réttarstöðu sakbornings.