Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist ekki sjá annað í stöðunni en að grípa þurfi til hertra aðgerða innanlands ef staðan á Landspítalanum versnar. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna sem hófst klukkan 11.
Á fundinum kom fram að 27 einstaklingar væru nú inniliggjandi á Landspítalanum með COVID-19 og eru fimm einstaklingar á gjörgæslu, þar af fjórir í öndunarvél.
Þórólfur sagði ekki ljóst á þessari stundu hvenær mögulega þarf að grípa til hertra aðgerða. „Það gæti gerst fyrr en síðar,“ sagði Þórólfur og bætti við að sóttvarnaryfirvöld væru í nánu samtali við Landspítalann um stöðuna og heilbrigðisráðuneytið.
Um hundrað smit hafa greinst á degi hverjum undanfarnar tvær vikur eða svo. Þórólfur segir þó að faraldurinn sé í línulegum vexti en ekki í veldisvexti sem skiptir höfuðmáli þegar kemur að aðgerðum innanlands. Aðalmálið er að tryggja að álagið á Landspítalann verði ekki of mikið.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sagði að 64 einstaklingar hefðu lagst inn á sjúkrahús í þessari fjórðu bylgju faraldursins sem nú er yfirstandandi. Meðalaldurinn er 64 ár en meðalaldur útskrifaðra er 50 ár.
Þá sagði Páll 45 einstaklingar væru nú skilgreindir gulir hjá COVID-göngudeild spítalans sem þýðir að þeir eru talsvert veikir. Göngudeidin sér meðal annars um símaeftirlit til þeirra sem eru í einangrun með COVID-19. Páll bætti við að helsta áskorun Landspítalans væri mönnun á gjörgæsludeildinni, starfið þar væri sértækt og ekki hægt að senda hvaða heilbrigðisstarfsmann sem er þangað.
Þórólfur sagðist eiga von á því að COVID-19 verði með okkur næstu mánuði, ef ekki næstu ár, og staðan í dag væri ekkert sérstaklega skemmtileg. Staðreyndin væri sú að ekki væri umflúið að grípa til hertra aðgerða ef þess gerist þörf til að vernda heilbrigðiskerfið.