Rúmlega fjórir af hverjum tíu Íslendingum telja sig vera trúaða, samkvæmt niðurstöðum könnunar Maskínu sem gerð var fyrr á þessu ári. Fréttablaðið fjallar um niðurstöðurnar í dag.
Ef niðurstöðurnar eru bornar saman við samskonar könnun árið 2015 kemur í ljós að trúuðum fækkar og þeim sem telja sig ekki trúaða fjölgar. Rúmlega helmingur fólks á aldrinum 18 til 39 ára telur sig ekki trúaðan og virðist trú aukast með aldrinum.
Könnunin var gerð dagana 16. til 22. janúar síðastliðinn og svöruðu 954 einstaklingar henni.
Athygli vekur að konur eru líklegri til að vera trúaðir en karlar, 45% á móti 38% karla.
Þá kemur fram að kjósendur Flokks fólksins séu líklegastir til að vera trúaðir. Um 73% kjósenda flokksins segjast trúuð en 14% ekki trúuð. Þar á eftir koma Framsóknarmenn með tæp 60%, Sjálfstæðismenn með tæp 59% og Miðflokkurinn með 48%. Kjósendur Pírata eru ólíklegastir til að telja sig trúaða.