Fjórða iðnbyltingin í verslun

Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís og nýkjörinn formaður Samtaka verslunar og þjónustu, er gestur hjá Jóni G. í kvöld. Hann tók við formennskunni af Margréti Sanders, ráðgjafa hjá Strategíu, í síðustu viku. Þeir koma víða við í fróðlegu viðtali og ræða helstu baráttumál verslunarinnar um þessar mundir sem og mjög harða samkeppni íslenskrar verslunar við erlenda netverslun. Fjórða iðnbyltingin með sinni gervigreind og sjálfvirknivæðingu mun fækka starfsmönnum í verslunum líkt og í öðrum greinum. Aukið frelsi í viðskiptum hefur ætíð verið helsta baráttumál verslunarinnar á Íslandi og þar hefur margt áunnist. Lækkun tolla og vörugjalda í verslun hefur skilað árangri en lækka þarf líka álögur hins opinbera á verslun. Skemmtilegur þáttur á dagskrá kl. 20:30 í kvöld.