Fjórða bylgjan í rénun? Um 100 smit greindust í gær

Margt virðist benda til þess að hin fjórða bylgja kórónuveirufaraldursins sé í rénun, en um hundrað innanlandssmit greindust í gær. Samkvæmt vefnum COVID.is greindust 57 smit í gær en samkvæmt pósti sem Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, sendi fjölmiðlum má búast við að rúmlega 40 smit bætist við þá tölu.

Álíka mörg sýni voru tekin í gær og á sunnudag en þann dag greindust 106 smit. 24 eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsi og 1.367 eru í einangrun.

Á forsíðu Morgunblaðsins í dag var fullyrt að fjórða bylgja faraldursins virtist vera í rénun. Bent var á að 1.447 hafi verið með virkt smit á laugardag og 1.386 í gær. Samkvæmt tölum á vef COVID.is eru 1.367 nú í einangrun með virkt smit en ekki liggur fyrir hvort sú tala sé röng eins og talan yfir heildarfjölda smita í gær.

Morgunblaðið hefur eftir Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, að bylgjum faraldursins muni ekki linna fyrr en 75 til 80% þjóðarinnar hafi smitast af veirunni. Hjarðónæmi verði ekki náð með bólusetningu og því séu að líkindum eitt til tvö ár þar til það næst.