Segja má að allt hafi ætlað um koll að keyra í hinum fjölmenna Facebook-hópi Landið mitt Ísland í gærkvöldi. Kona setti þar inn færslu sem var svohljóðandi:
„Við erum 4 manna fjölskylda sem langar í bústaðarferð helgina 9-11 okt, ekki langt frá Reykjavík samt. Alger nauðsyn að það sé heitur pottur. Er einhver til í að leigja okkur á sanngjörnu verði. Erum vel húsvön.“
Um það leyti sem færslan birtist voru strangari aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu í undirbúningi vegna kórónuveirufaraldursins og voru þær tilkynntar um klukkustund síðar. Konan sem setti færsluna inn fékk yfir sig holskeflu af gagnrýni frá hneyksluðum netverjum sem veltu fyrir sér hvernig konunni dytti það í hug að fara með fjölskylduna sína í bústað í því ástandi sem ríkir.
Konunni var bent á að verið væri að hvetja fólk til að vera heima og sagði konan sem óskaði eftir bústað þá í einni athugasemd að fjölskyldan ætli bara að vera í bústaðnum og ekki hitta neinn. Þá komu svör eins og til dæmis þessi:
„Fjallar ekki bara um að hitta fáa, heldur líka að minnka ferðalög og fólk á vegum svo minna verði um umferðaróhöpp og annað sem gætu aukið álag á sjúkrahúsin.“
„Óhöpp gera ekki boð á undan sér. Á venjulegu ári er mesta álagið á bráðavaktinni á Selfossi vegna slysa sem verða í sumarhúsum.“
„En hvað með fólkið sem þarf að þrífa eftir ykkur? Þú ert að stefna því í hættu með að fara í bústað.“
„Hvað er að fólki getur það ekki verið heima hjá sér þegar ástandið er svona slæmt í þjóðfélaginu það hugsar bara um sjálft sig og sínar langanir.“
„Þessi póstur/ beiðni útskýrir nákvæmlega af hverju við erum öll í þessum skít.“
Þess má svo geta að margir koma konunni til varnar og benda á að óþarfi sé að sýna konunni dónaskap. Þegar þetta er skrifað hafa hátt í 200 athugasemdir verið skrifaðar við færsluna – og þær snúast fæstar um það sem konan spurði efnislega um.
„Hérna.. hvað er að fólki? 4 manna fjölskylda sem býr saman að fara saman í bústað án þess að hitta neinn. Augljóst að fólk sem kommentar hér hefur engan hitt í 6 mánuði.“
„Vá. Konan kom ekki hér inn í leit að uppeldisráðum og umvöndun, er það?“