Fjölskylda konunnar sem var skotin til bana á aðfangadagskvöldi er sögð eyðilögð og óhuggandi. Á sama tíma berst 28 ára gamall maður fyrir lífi sínu á spítala. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins en Sky News og The Sun greina frá.
Konan, sem var 26 ára, lést á staðnum eftir að hafa fengið skot í hausinn er maður gekk inn á Lighthouse Inn barinn í Wallasey í Bretlandi nálægt Liverpool. Þrír aðrir særðust í árásinni sem er sögð hafa verið tilhæfulaus.
Skotmaðurinn gekk inn á barinn rétt fyrir miðnætti á aðfangadagskvöldi og skaut að minnsta kosti átta skotum í átt að gestum barsins ef marka má skothljóðin sem náðust óvænt á upptöku hjá ungri konu í grenndinni.
Hefð er fyrir því að barinn sé fullur að fólki og lífi á aðfangadagskvöldi og var konan sem lést að skemmta sér með systur sinni og vinum.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Merseyside lögreglunni, Jenny Sims, sagði á blaðamannafundi í gær að árásarmaðurinn hefur greinilega enga virðingu fyrir mannslífum eða almenningi sem vill bara fá að njóta lífsins óttalaus.
Rannsóknarlögreglukonan Sue Coombs sagði á sama blaðamannafundi að rannsókn málsins væri enn á grunnstigum en það er þó ekki talið að konan sem lést hafi verið skotmark.
Skömmu eftir að skotárásinni lauk sást til Benz bifreiðar bruna út af bílastæði barsins. Lögreglan leitar nú að ökumanni bifreiðarinnar sem og skotmanninum.