Fjöl­skyldan send í CO­VID-próf í fylgd þriggja lög­reglu­manna

Egypska fjöl­skyldan sem stendur til að vísa úr landi á mið­viku­dag gekkst undir CO­VID-19-próf í fylgd þriggja lög­reglu­manna í dag.

Sagt er frá þessu á vef Frétta­blaðsins sem birtir mynd­band af fjöl­skyldunni sem tekið var eftir að fjöl­skyldan gekkst undir skimunina. Um er að ræða hjónin Dooa og I­bra­him og börn þeirra fjögur sem komu hingað til lands árið 2018.

Fjöl­skyldunni var neitað um vernd og bendir flest til þess að hún verði send úr landi þann 16. septem­ber næst­komandi.

„Ég hef verið í sam­bandi við þetta fólk undan­farið og hef aldrei séð þau eins hrædd og í dag. Þau voru hér í fylgd lög­reglu, þau voru ekki frjáls,“ segir maður sem Frétta­blaðið ræddi við en hann vildi ekki láta nafns síns getið.

Þá stað­festir lög­maður fjöl­skyldunnar, Magnús D. Norð­dahl, að fólkið hafi verið hvekkt og hrætt en þau trúi því enn að ekki verði að brott­vísuninni. „COVID-prófið er partur af þessari þvinguðu brottvísun sem að óbreyttu á að fara fram á miðvikudaginn, en við trúum því og treystum að svo verði ekki,“ segir Magnús.

Nánar er fjallað um málið á vef Frétta­blaðsins.