Síðastliðinn sunnudag gaf fjölskylda Núma Magnússonar út lagið Númi til að minnast hans en hann lést í byrjun árs 2015. Þetta kemur fram á vefnum Trölli.is
Númi tók eigið líf en hann hefði orðið fertugur í ár . Fjölskyldan segir að með útgáfu lagsins vilja þau benda fólki á Píeta samtökin og þeirra starf, til hjálpar fólki með með sjálfsvígs hugsanir.
„Enga von þú sást handan við hornið, villu vega leiddu skuggarnir þig.
Fastur í þínu eigin dimma hugskoti, og lævísar raddirnar grófu um sig,“ segir í texta lagsins sem má hlusta á hér að neðan.
Lagið Númi er samið af Magnúsi G. Ólafssyni og textinn er eftir systur Magnúsar, Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur.
Lagið er spilað og tekið upp af nánustu fjölskyldu og vinum þeirra og verður frumflutt í þættinum Tíu Dropum á sunnudaginn á FM Trölla og trolli.is.
Magnús Ólafsson og synir hans, Magnús, Alexander og Ída ætla af þessu tilefni að mæta í viðtal á Trölla kl. 11.00, þar sem lagið verður frumflutt.
Fjölskyldan vill þakka öllum þeim sem hjálpuðu við að koma laginu út og þá sérstaklega Gulla Helga og Gunnari Smára fyrir hjálpina.
Söngur: Ída Irené Oddsdóttir
Trommur: Alexander Magnússon
Gítar: Magnús Jón Magnússon
Bassi: Gunnlaugur Helgason
Mix og master: Gunnar Smári Helgason
Gítar, hljómborð og forritun: Magnús G Ólafsson
Hægt er að nálgast lagið á Spotify og Youtube.
Þeim sem vilja minnast Núma Magnússonar er bent á reikning Pieta samtakanna:
0301-26-041041, Kt: 410416-0690