Aðstandendur Kristmanns Eiðssonar, sem lést úr COVID-19 á Landakoti, síðastliðinn þriðjudag eru afar þakklátir í garð starfsfólks Landakots sem annaðist Kristmann í veikindum hans við erfiðar aðstæður.
Fjölskylda hans birtir yfirlýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem segir meðal annars:
„Þessi hópsýking og sviplegt fráfall föður okkar, ætti að sýna okkur öllum að veiran er óútreiknanleg og ekkert lamb að leika sér við. Við þurfum öll að gæta okkar.“
Kristmann var 84 ára þegar hann lést en hann átti afar farsælan feril sem þýðandi og kennari.
Í yfirlýsingunni kemur fram að aðstandendum hans hafi brugðið þegar fréttir bárust af sýkingunni á Landakoti, en Kristmann dvaldi þar meðan hann beið hjúkrunarrýmis á öðrum stað.
Fjórir synir Kristmanns fengu að heimsækja hann, tveir og tveir í einu í fullum sóttvarnaskrúða á mánudagskvöldið.
„Við nánasta fjölskylda fengum að kasta á hann kveðju þá um kvöldið í tveggja manna hollum í fullum sóttvarnabúningi og erum við starfsfólkinu á Landakoti óumræðilega þakklát fyrir að hafa gefið okkur tækifæri til þess að gera það. Starfsfólk Landakots, sem áreiðanlega var sjálft í áfalli yfir sýkingunni, sýndi okkur gríðarlega velvild og hlýju í öllu ferlinu og það gerði okkur lífið örlítið léttara á þessum örlagastundum,“ segir í yfirlýsingu fjölskyldu Kristmanns sem birtist í Fréttablaðinu í dag.