Fjölskylda Brynjars Þórs Guðmundssonar, meints árásarmanns við skotárás á Blönduósi að sunnudagsmorgni, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna árásinnar. Þetta kemur fram í frétt mbl.is
Þau óska þar eftir virðingu og skilningi á einkalífi sínu og Brynjars og biðja fyrir því að maðurinn sem liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir skotárásina nái heilsu.
hér að neðan má sjá yfirlýsinguna í heild sinni.
„Frá fjölskyldu Brynjars Þórs
Sonur okkar og bróðir tók hræðilegar ákvarðanir sem urðu til þess að hann lét lífið, kunningjakona okkar einnig og eiginmaður hennar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Við syrgjum bróður og son. Við getum ekki svarað fyrir gjörðir hans og hann ekki heldur. Við viljum biðja fjölmiðla að sýna okkur skilning og virða einkalíf okkar, og Brynjars.
Við biðjum fyrir því að Kári nái heilsu og sendum fjölskyldunni, vinum og öðrum sem eiga um sárt að binda innilegar samúðarkveðjur.
Við viljum biðja fjölmiðla um tillitsemi. Þrátt fyrir ákvarðanir Brynjars þá syrgjum við kæran son og bróður.
Með kveðju,
Foreldrar og systkini Brynjars“