Fjölnir Geir Braga­son látinn

Fjölnir Geir Braga­son, betur þekktur sem Fjölnir Tattú, er látinn. Fjölnir hefur verið einn þekkasti húð­flúrari Ís­lands um ára­raðir og þótti ein­stak­lega fær í sínu fagi. Fjölnir hefur einnig verið á­berandi í ís­lensku sam­fé­lagi á síðustu árum fyrir ein­stakt lífs­hlaup sitt.

Vinir og ættingjar Fjölnis minnast hans með fal­legum orðum á Face­book í dag og er ljóst að hann hefur snert hjörtu margra.

Ari Matthías­son, fyrr­verandi leik­hús­stjóri, er meðal þeirra sem minnist Fjölnis og segir hann frá­fall hans vera harm­dauði.

Ás­geir Braga­son, bróðir Fjölnis, deildi einnig mynd af sér og bróðir sínum og sagði að honum verði sárt saknað.