Fjöl­margir tengja við sér­staka þrá­hyggju Guð­mundar: „Hugsa um þetta 3-4 sinnum í viku“

Guð­mundur Jörunds­son, fata­hönnuður og rekstrar­stjóri líf­stíls­verslunarinnar Nebraska á Baróns­stíg, skrifar um afar sér­staka þrá­hyggju sem hann er með á Twitter í dag.

Mörgum til mikillar undrunar þá virðast fjöl­margir tengja við þrá­hyggju Guð­mundar.

„Ég er með þrá­hyggju fyrir því að láta smíða fyrir mig barna­­vagn í full­orðins­­­stærð og leggja mig í honum á daginn úti í garði alveg dúðaður og í svefn­­poka.

Tengir ein­hver annar við þetta eða er þetta bara ég að vera við­undrið sem ég er?“ spyr Guð­mundur. „Hugsa um þetta 3-4 sinnum í viku,“ bætir hann við.

Hekla Elísa­bet Aðal­steins­dóttir, sem starfar fyrir þing­flokk Pírata, segir við Guð­mund að hann er ekki einn.

Stein­grímur Ara­son tekur einnig undir og segir: „Dreymi um að eignast svona“

„ÉG! Og hér er loksins komið á hreint að það er eftir­­­spurn! Þetta ER milljón dollara hug­­mynd! Við, sem gengið höfum með þessa hug­­mynd í maganum í fleiri, fleiri ár: Sam­einumst! Látum þetta gerast! Sumarið 2023,“ skrifar Guð­ný Niel­sen.

Anna Jóna Dungal segist hafa verið að út­skýra þetta fyrir manninum sínum í vikunni: „Hefur verið draumur í alla­vega ára­tug.

Felix Berg­son er hins vegar með lausn fyrir Guð­mund og segir honum að kíkja til Ber­línar.
„Fol­som Europe í septem­ber er greini­lega giggið fyrir þig,“ segir Felix.