Margir mættu í sýnatöku hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í dag en RÚV hefur það eftir Óskari Reykdalssyni, forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að 1.165 manns hafi mætt í sýnatöku í dag.
Um er að ræða töluvert fleiri sýni en hafa verið tekinn síðastliðna daga en engin sýni voru til að mynda tekin í gær, á nýársdag. Þá voru sýnin mjög mörg miðað við laugardag en síðustu laugardaga hafa sýnin verið í kringum 500 talsins.
Óskar segir í samtali við RÚV að það sé ekki óvænt að svona margir hafi mætt í sýnatöku í dag þar sem þetta væri uppsafnaður fjöldi frá því á gamlársdag. Aðeins var opið fyrir sýnatöku milli hálf níu og ellefu að morgni gamlársdag.
Á morgun má gera ráð fyrir bráðabirgðatölum um smit en uppfærðar tölur verða birtar á covid.is næstkomandi mánudag.