Fjóla Sigurðardóttir, sem stofnaði hlaðvarpsþáttinn Eigin konur ásamt Eddu Falak, segir að viðtal sem birtist við Eddu fyrir skemmstu á vef Vísis hafi farið fyrir brjóstið á henni.
Fyrirsögn viðtalsins er bein tilvitnun í orð Eddu: „Mér finnst skrýtið að ætlast til þess að þú sért að vinna frítt“. Í viðtalinu svaraði Edda meðal annars fyrir gagnrýni sem snýr að því að hún rukkar fyrir efni þáttanna. Benti hún meðal annars á að standa þyrfti straum af framleiðslukostnaði við gerð þáttanna, til dæmis borga fólki sem sér um að klippa þá.
Fjóla sagði á Twitter-síðu sinni í morgun:
„Mars 2021 var fyrsti Eigin konu þátturinn - blóð, sviti og tár voru sett í þessa vinnu, frá okkur öllum ásamt framleiðslustjóranum okkar @davidgodith - áskriftir og sponsar - við Davíð höfum ekki séð krónu fyrir okkar vinnu“.
DV bar færsluna undir Eddu sem sagði gagnrýnina sem birtist í tísti Fjólu ósanngjarna. Þó sé enginn ágreiningur um að Fjóla og framleiðslustjórinn Davíð Goði eigi inni peninga hjá henni og aldrei hafi staðið annað til en að gera það upp.
„Hins vegar hafa þau hvorugt verið í sambandi við mig varðandi það uppgjör og því finnst mér þessar árásir á Twitter einkennilegar,“ segir hún meðal annars á vef DV.
Þetta viðtal fór virkilega mikið fyrir brjóstið á mér
— Fjóla Sigurðardóttir (@fjolasigurdar) April 11, 2022
Mars 2021 var fyrsti Eigin konu þátturinn - blóð, sviti og tár voru sett í þessa vinnu, frá okkur öllum ásamt framleiðslustjóranum okkar @davidgodith - áskriftir og sponsar - við Davíð höfum ekki séð krónu fyrir okkar vinnu pic.twitter.com/nKupiqKHyb