Fjóla Bjarnadóttir og fjölskylda hennar eiga trúlega einn magnaðasta páfagauk landsins. Fréttablaðiðfjallaði um þetta skemmtilega mál í gærkvöldi og birti myndbönd af páfagauknum sem er málglaðari en margir.
„Hann talar mikið og segir í sífellu „Kisi kisi mjá mjá“ en hefur líka lært að segja „ástin mín“ og „mamma“ og „kúkur“. Enda erum við alltaf að tala um að þrífa upp eftir hann,“ segir Fjóla í samtali við Fréttablaðið.
Á myndböndum sem Fjóla hefur birt á samfélagsmiðlum má meðal annars heyra fuglinn kalla á eftir kisu, gefa frá sér hóstahljóð og halda uppi samræðum með að minnsta kosti þremur mismunandi röddum.
Nánar má lesa um páfagaukinn á vef Fréttablaðsins en þar má einnig finna fleiri myndbönd.