Fjallamjólkin getur verið okkar Mona Lisa

Gjöfin til íslenzkrar alþýðu nefnist veglegt rit um hina miklu myndlistargjöf Ragnars Jónssonar í Smára sem lagði grunninn að Listasafni ASÍ. Þarna er fjallað um öll verkin 147 sem tilheyra gjöfinni sem eru verk virtustu og dáðustu málara 20.aldarinnar.

Þar má sjá til dæmis eitt mesta djásn íslenskrar myndlistar, málverkið Fjallamjólk sem Jóhannes Kjarval málaði árið 1941 og hart var sótt af útsendurum MOMA safnsins í New York á sínum tíma að fá að kaupa dýrum dómum. Því neituðu Ragnar og Kjarval í sameiningu en mögulega hefði það orðið til þess að Kjarval yrði þekktur utan landsteinanna, jafnvel á pari við þá stærstu á öðrum Norðurlöndunum s.s. Edvard Munch.

Athafnamaðurinn og hinn umsvifamikli iðnrekandi Ragnar í Smára ákvað að afhenda Alþýðusambandi Íslands málverkasafn sitt. Verkin voru afhent við hátíðlega athöfn sumarið 1961 og er stærsta einkasafn til þessa tíma á Íslandi sem hefur verið gefið einni stofnun. Gjöfina tileinkaði Ragnar vini sínum Erlendi í Unuhúsi.

Ritið sem Listasafn ASÍ gefur út, fékk nýverið gullverðlaun Félags íslenskra teiknara fyrir hönnun en það voru Arnar&Arnar sem hönnuðu gripinn, þeir Arnar Fells Gunnarsson og Arnar Ingi Viðarsson. Þar má sjá öll verkin sem Ragnar gaf og litríkar sögulegar upplýsingar um þau.

Arnar Fells, Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur og Elísabet Gunnarsdóttir, safnstjóri Listasafn ASÍ sem ritstýrði útgáfunni mæta í viðtal við Lindu Blöndal í þættinum Sögustund í kvöld, mánudag Kl.20.

Kjarval. Fjallamjólk.