Finnur hjá Jóni G. um könnun ASÍ: Bónus gefur ekki tommu eftir!

Finnur Oddsson, forstjóri Haga, er gestur Jóns G. í kvöld. Þeir koma meðal annars inn á könnun sem ASÍ birti sl. mánudag um að verð í Bónus hefði hækkað meira að undanförnu en hjá flestum keppinautanna. Jón spyr hann hvort Bónus sé að gefa eitthvað eftir? Ekki tommu, svarar Finnur ákveðið í þættinum og undrast að verðið á umræddri matarkörfu í könnuninni hafi ekki verið birt og Bónus fylgi sinni stefnu, sem mörkuð var í upphafi fyrir 31 ári, að bjóða lægsta verðið.

Finnur hafði forvitnileg vistaskipti sl. sumar þegar hann hætti sem forstjóri Origo til að taka við forstjórastarfi hjá Högum. Þeir Jón fara yfir þessi vistaskipti en stundum er sagt að í því felist lítill munur að fara á milli atvinnugreina; stjórnun sé alltaf stjórnun. Er Finnur sammála því?

Þeir koma víða við og ræða samkeppnina á matvörumarkaðnum og helstu áskoranir sem hann og starfsmenn Haga hafa glímt við undanfarna mánuði í þeim efnahagsþrengingum sem þjóðin er óneitanlega í um þessar mundir.

Kl. 20:30 á Hringbraut í kvöld.