Rithöfundurinn Finnbogi Hermannsson segir í Morgunblaðinu í dag að Bergsveinn Birgisson, sem sakar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um ritstuld, hafi sjálfur líklega tekið texta úr bók Finnboga, Einræður Steinólfs frá árinu 2003, og notað í bók sína Svar við bréfi Helgu frá árinu 2010.
„Jú, líklega er þetta ritstuldur hjá Bergsveini en hann vildi ekki viðurkenna það á sínum tíma þegar ég bar það upp á hann,“ sagði Finnbogi við Morgunblaðið.
Það vakti mikla athygli í vikunni þegar Bergsveinn sagði að Ásgeir hefði stolið hugmyndum úr bók sinni Leitin að svarta víkingnum og notað í nýja bókina Eyjan hans Ingólfs.
Bergsveinn hefur kært Ásgeir til siðanefndar HÍ og íhugar að höfða mál. Ásgeir hafnar ásökununum með öllu og segir bókina sína vera veikburða tilraun til að setja fram tilgátu um það hvernig þjóðskipulag myndaðist á Íslandi. „Ég fæ ekki betur séð en að að bækur okkar Bergsveins séu ákaflega ólíkar bæði hvað varðar nálgun, umfjöllun og niðurstöður. Ég held að öllum verði það ljóst sem lesa báðar bækurnar.“
Finnbogi segir við Morgunblaðið að hann ætli sér ekkert lengra með sitt mál.