Finnbjörn Hermannsson, fyrrverandi formaður Byggiðnar, hefur tilkynnt framboð til embættis forseta Alþýðusambands Íslands. Þá býður Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins sig fram til 2. varaforseta.
„Ég hef ákveðið að verða við þeim fjölmörgu áskorunum sem ég hef fengið um að gefa kost á mér í embætti forseta ASÍ,“ segir Finnbjörn í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í morgun. „Ég hef verið í forsvari fyrir byggingamenn í 26 ár og lét nýverið af störfum sem formaður Byggiðnar – félags byggingamanna. Ég bý að áratugareynslu af margvíslegum trúnaðarstörfum innan verkalýðshreyfingarinnar og hef ætíð verið talsmaður samvinnu og sátta. Ég vil leggja mín lóð á vogarskálar þess að verkalýðshreyfingin rísi undi ábyrgð sinni á erfiðum tímum, og standi vörð um kjör vinnandi fólks og sæki fram fyrir bættum lífskjö-rum okkar allra. Með því að still,a saman strengi í gegnum sterk og öflug heildarsamtök getur verkalýðshreyfingin knúið á um raunverulegar kjarabætur sem halda til frambúðar,“ segir í tilkynningunni
Eins og Hringbraut greindi frá í gær hefur verið að myndast nokkuð víðtæk samstaða meðal sterkra aðildarfélaga og -sambanda innan ASÍ um að styðja Finnbjörn til embættis forseta. Mikil óvissa hefur verið um forystu sambandsins eftir að aðalfundurinn síðastliðið haust leystist nokkurn veginn upp þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, dró framboð sitt til forseta til baka.
Líklegt er talið að Finnbjörn njóti víðtæks stuðnings til embættis forseta innan ASÍ en þar er einnig í kjöri Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, en hún var einnig í framboði gegn Ragnari Þór síðastliðið haust.
Fyrir liggur að Kristján Þórður Snæbjarnarson, 1. varaforseti ASÍ og starfandi forseti, býður sig áfram fram til setu sem 1. varaforseti. Heyrst hefur að Ragnar Þór Ingólfsson hafi einnig hug á að bjóða sig fram til embættis 1. varaforseta. Því gæti orðið slagur um það embætti. Hringbraut náði ekki í Ragnar Þór við vinnslu þessarar fréttar.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, staðfesti í við Hringbraut í morgun að hann muni bjóð sig fram til embættis 2. varaforseta.
Ekki er vitað um framboð til 3. varaforseta á þessari stundu en ýmsir innan ASÍ telja mikilvægt að minnst ein kona verði í forystusveit sambandsins.