Framkvæmdir í Vallahverfi í Hafnarfirði, þar sem til stóð að setja upp svokallaðan ærslabelg fyrir börn hverfisins, hafa verið settar á ís vegna mótmæla frá íbúum við Fléttuvelli.
Til stóð að setja belginn upp við hlið Skarðshlíðarskóla og leikskólans Hamravalla, en eftir að íbúar fóru fram á að framkvæmdir yrðu stöðvaðar var framkvæmdin sett á ís um stundarsakir að minnsta kosti.
Fréttablaðið fjallar um málið í dag og segir að íbúar hafi sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem fram kemur að ekkert samráð hafi verið haft um málið við íbúa.
„Íbúar almennt hér í bænum ættu alls ekki að þurfa að líða slík vinnubrögð,“ segir í bréfinu samkvæmt frétt Fréttablaðsins.
Þá er bent á í bréfinu að engin grenndarkynning hafi farið fram og að mosi sé friðaður samkvæmt lögum. Því þurfi að finna belgnum nýjan stað og laga tjónið sem þegar er orðið.
Íbúar í hverfinu hafa margir hverjir lýst óánægju sinni með það að framkvæmdir hafi verið stöðvaðar. Hafa til dæmis farið fram umræður um málið á Facebook-síðu íbúa hverfisins.
„Hver myndi ekki vilja eitthvað skemmtilegt fyrir börnin í hverfinu okkar?,“ spyr einn íbúi. Þá kalla margir eftir því að undirskriftum verði safnað svo hægt verði að koma belgnum upp í hverfinu, enda ærslabelgir ákaflega vinsælir meðal barna.
Árdís Ármannsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar, birti athugasemd í grúppunni í gær þar sem hún sagði: „Sæl öll - þetta mál er til skoðunar hjá okkur og vonandi geta framkvæmdir farið af stað aftur fljótlega.“
Samkvæmt fundargerð skipulags- og byggingarráðs skrifuðu fimmtán íbúar undir undirskriftalistann þar sem kallað var eftir því að framkvæmdir yrðu stöðvaðar.
Einn þeirra íbúa sem kvittuðu undir skrifaði færslu í íbúahópinn í dag þar sem hann sagði að íbúar væru ekki mótfallnir því að fá ærslabelg, en þeir væru mótfallnir samskipta- og virðingarleysi bæjarins.
„Bærinn þarf að fara að reglum og ræða við nágranna þeirra framkvæmda sem stendur til að gera, sama hvort sem það er ærslabelgur, knatthús, almenningssalerni eða dælustöð! Sérstaklega á stað sem bærinn hefur í einn og hálfan áratug fullyrt að umrætt svæði sé friðað,“ segir í erindi íbúans. Þá segir hann að mörgum spurningum sé ósvarað.
„Það er ekki búið að teikna þessa framkvæmd, hvernig verður frágangur? Kemur til með að vera upplýst svæði þarna? Á göngustígurinn sem er ansi stór að vera malbikaður? Við búum saman í hverfinu og bærinn minnir okkur rækilega á að allar framkvæmdir sem við íbúarnir viljum gera þarf að vera í sátt við nágranna og samkvæmt lögum og reglum, við teljum að það sama eigi við um bæinn,“ bætir hann meðal annars við.