Fimm innanlandssmit greindust hér á landi í gær sem verður að teljast nokkurt áhyggjuefni í ljósi þess að ýmsum takmörkunum var aflétt í gær. Þrír voru í sóttkví við greiningu en tveir utan sóttkvíar.
Eitt smit greindist á mánudag og var sá utan sóttkvíar.
Eins og flestir vita var grímuskyldu aflétt í gær við talsverðan fögnuð margra. Þá er búið að aflétta ýmsum samkomutakmörkunum frá því sem áður var.
Samkvæmt tölum á vef COVID.is er einn á sjúkrahúsi með COVID-19 og 38 einstaklingar eru í einangrun. Einn einstaklingur er undir eins árs, en fjölmennasti hópurinn er á aldrinum 30 til 39 ára, eða tólf talsins.